100% Whey Pure Vanilla

4.490 ISK

BLANDA AF MYSUPRÓTEINI BÆTT MEÐ AMÍNÓSÝRUM OG SÆTUEFNUM ÁN GLÚTENS

Ríkt af próteini: 78%
6g. af BCAA í hverjum skammti
Ekkert glúten
Enginn viðbættur sykur
Ekkert Aspartame
Engin rotvarnarefni
Fjölbreyttar bragðtegundir

Dekraðu við vöðvana!
Það er nauðsynlegt að útvega vöðvum hágæða næringu til þess að þeir starfi eðlilega, stækki og geti styrkst. Dekraðu við vöðvana og sjálfan þig og fáðu þér gómsætt 100% Pure Whey prótein.

Af hverju 100% Pure Whey?
100% Pure Whey er hágæða próteinduft með hátt líffræðilegt gildi (BV), 78% prótein sem 100% mysuprótein. Duftið er blanda af mysuprótein concentrate (hreinsað), mysuprótein isolate (einangrað) og er bætt með mikilvægum amínósýrum (L-glútamín, L-arginín og BCAA). Það er fáanlegt í fjölbreyttum og ljúffengum bragðtegundum.

Veldu 100% Pure Whey til að hlaða vöðvana!

1 skammtur(28g):
22g prótein
þar af 6g BCAA

Við mælum með 100% Pure Whey ef þú?
Ert að leita að frábærum próteingjafa, því prótein stuðlar að vexti og viðhaldi á vöðvavef og heilbrigðum beinum
Vilt próteinblöndu til að taka eftir æfingu, sem meltist og frásogast mjög hratt 
Þolir ekki glúten
Vilt fá bragðgóðan próteindrykk sem er fáanlegur í úrvali bragðtegunda

Til hvers að taka prótein?
Prótein er nauðsynlegt byggingarefni í líkama okkar. Það er uppspretta orku í formi amínósýra, sumar sem líkaminn getur framleitt sjálfur en aðrar er lífsnauðsynlegt að fá úr mataræðinu. Prótein hjálpar þér að viðhalda vöðvamassa við æfingar, grenningu og daglegt líf. Ef þú stundar íþróttir, vilt auka vöðvamassa eða þú ert farin(n) að eldast, þá þarftu meira prótein.

Til hvers að taka prótein fæðubótarefni?
Að drekka próteinríkan hristing er fljótleg, hentug og mjög áhrifarík leið til að auka próteininntöku. Það þarf bara próteinduftið, hristibrúsa og vatn. Próteinduftið er auðmeltanlegt, en mikið magn kjötneyslu getur hins vegar hækkað sýrustig. Próteinduft getur verið útbúið úr mjólk, dýrum, jurtum eða getur verið samsetning úr mismunandi uppsprettum. Prótein getur frásogast hratt (30-40mín), miðlungshratt (1-2klst.) eða hægt (lengur en 2klst.).

Líkt og allar vörur frá BioTechUSA, þá eru innihaldsefnin í 100% Pure Whey örugg og vandlega valin.