Garmin Vívosmart 5 Svart

29.990 kr
Frá garmin

TAKTU HEILSUNA FÖSTUM TÖKUM

Ef þú þarft úr í þægilegri stærð og þér er annt um heilsuna, er vivosmart 5 úr fyrir þig. Það er einfalt í notkun og fylgist með heilsunni¹ allan sólarhringinn.

Telur skrefin, mælir púlsinn² og fleira.

Rafhlöðuending: allt að 7 dagar sem snjallúr.

Nokkur innbyggð æfingaforrit, þ.a.m. hlaup, hjól og yoga.

Mælir svefninn og gefur þér einkunn fyrir gæði svefnsins.

Birtir snjalltilkynningar frá snjallsíma.

Hægt er að tengjast GPS frá síma til að fá nákvæmari upplýsingar um æfingar.


EINFALT Í NOTKUN

Úrin voru hönnuð með einfaldleika í huga. Úrið er nett á hendi, er með 66% stærri skjá en forveri sinn og kemur með takka.

HANNAÐ FYRIR ÞIG

Hægt er að skipta um ólar á úrinu þannig þú ræður útlitinu.

RAFHLÖÐUENDING

Rafhlöðuending: allt að 7 dagar.



INNBYGGÐUR PÚLSMÆLIR

Innbyggður púlsmælir² fylgist með púlsinum og lætur þig vita ef hann er of hár eða lágur í hvíld. Einnig hjálpar hann þér að sjá hversu vel þú tókst á því á æfingu.


BODY BATTERY™ ORKUMÆLING

Fylgstu með orkustöðu líkamands til að sjá hvort þú sért með næga líkamsorku til að fara á æfingu eða hvort þú ættir að taka hvíld.


SÚREFNISMETTUN

Fyrir hæðaraðlögun og svefnskráningu. Súrefnismettunarmælirinn (Pulse Ox) notar lítinn ljósgeisla til að mæla hversu vel líkaminn er að taka upp súrefni.


SVEFNSKRÁNING

Úrið gefur þér einkunn fyrir gæði svefnsins þíns og veitir þér innsýn í hvernig þú getur bætt hann. Úrið fylgist með létt-, djúp- og REM svefni ásamt því að skrá niður púls², súrefnismettun³ og öndun.


STRESS SKRÁNING

Getur sagt þér hvort að þú sért að eiga rólegan, jafnan eða stressaðan dag. Áminning um slökun minnir þig á að gera stuttar og slakandi öndunaræfingar.


DRAGÐU ANDANN

Þetta úr bíður uppá nokkrar öndunaræfingar. Þegar þú vilt slaka á, geturðu byrjað öndunaræfingu, og úrið skráir niður stress og öndun til að hjálpa þér að ná betri áttum á hvernig þú ert að anda.


DRYKKJARSKRÁNING

Hjálpar þér að halda utan um hversu mikið vatn þú ert að drekka og fylgjast með muninum á milli daga.


FYLGIST MEÐ ÖNDUN

Fylgist með öndun yfir daginn, á meðan þú sefur og á æfingum eins og yoga.


SKRÁIR TÍÐAHRINGINN

Hjálpar þér að fylgjast með hvar þú ert í hringnum, skrá niður líkamleg og andleg einkenni og kennir þér hvernig þjálfun og næring hentar best fyrir hvern hluta tíðahringsins.


FITNESS AGE

Þessi eiginleiki notar aldurinn þinn, vikulegt æfingaálag og hvíldarpúls til að áætla hvort líkami þinn sé yngri eða eldri en þú sjálfur ert. Þú getur einnig fengið ábendingar um hvernig þú getur bætt þig⁴.